Elín S. Sigurðardóttir, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, hlaut viðurkenningu fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi 2026 á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi sem haldin var þann 14. október síðastliðinn.
Viðurkenningin er veitt einstaklingi sem hefur tekið þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi og sýnt metnað og elju í störfum sínum.
Elín hefur hefur gegnt starfi forstöðumanns Heimilisiðnaðarsafnsins frá árinu 1993. Á þeim tíma hefur hún unnið ötullega að uppbyggingu og þróun safnsins, sem er eina safn sinnar tegundar hér á landi. Safnið gegnir mikilvægu hlutverki í varðveislu og miðlun menningararfs og tekur á móti um 4.000 gestum árlega, bæði innlendum og erlendum.
Elín hefur jafnframt verið virk í samstarfi safna og safnafólks og tekið þátt í starfi Markaðsstofu Norðurlands. Með áratugalöngu og metnaðarfullu starfi hefur hún átt stóran þátt í að byggja Heimilisiðnaðarsafnið upp sem öfluga menningarstofnun og áhugaverðan viðkomustað ferðamanna á Norðurlandi.
Húnabyggð óskar Elínu innilega til hamingju með þessa vel verðskulduðu viðurkenningu og þakkar henni fyrir ómetanlegt framlag til menningar- og ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
