Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. ágúst 2026 að Deiliskipulag gamla bæjarins og Klifamýrar skyldi auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið nær yfir gamla bæinn og Klifamýri, staðsett sunnan Blöndu og vestan Hringvegar. Um að ræða nýtt deiliskipulag fyrir þennan elsta hluta þéttbýlisins, þar sem nú er að finna íbúða- og atvinnusvæði, opin svæði og minjar um þróun byggðarinnar. Í deiliskipulaginu er að finna verndarákvæði fyrir byggðina og fyrirkomulag gatna og stíga um svæðið.
Tillagan er aðgengilega í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 895/2024. Jafnframt er hægt að kynna sér gögn á skrifstofu Húnabyggðar, Húnabraut 5, 540 Blönduósi auk þess sem gögnin eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunabyggd.is. Fyrirspurnir um málið má senda á bygg@hunabyggd.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir við tillöguna. Ábendingar og athugasemdir þurfa að vera skriflegar og skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 7. desember 2026.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Húnabyggðar
