Fjallskilanefnd Auðkúluheiðar samþykkir að segja upp gildandi samningi við
landeigendur Sauðadals samkvæmt uppsagnarákvæðum samningsins.
Nefndin telur tímabært að endurskoða fyrirkomulag smölunar og fjárhalds í
Sauðadal. Samkvæmt núgildandi samningi bera fjallskiladeildir
Auðkúluheiðar og Grímstungu- og Haukagilsheiðar ábyrgð á öllum smölunum
í dalnum og standa straum af kostnaði við þær, á sama tíma og réttur þeirra til
beitar á svæðinu er mjög takmarkaður.
Fjallskilanefnd telur að smölun Sauðadals sé samfélagslegt verkefni þar sem
eðlilegt sé að landeigendur komi í auknum mæli að framkvæmd og ábyrgð
smalananna.
Með uppsögn samningsins vill nefndin skapa grundvöll fyrir endurskoðun á
verkaskiptingu og ábyrgð aðila þannig að fyrirkomulagið verði sanngjarnara og
endurspegli betur hagsmuni og ábyrgð þeirra sem að Sauðadal koma.
Fjallskilanefnd óskar eftir góðu samstarfi við landeigendur og sveitarstjórn
Húnabyggðar um endurskoðun fyrirkomulagsins og að unnið verði að nýjum
samningi sem tryggi skýra og sanngjarna verkaskiptingu til framtíðar.
Samþykkt á fundi Fjallskilanefndar Auðkúluheiðar þann 15. apríl 2026.


Fyrir hönd Fjallskilanefndar Auðkúluheiðar


Helgi Páll Gíslason fjallskilastjóri
Jóhanna Stella Jóhannsdóttir ritari

Getum við bætt efni þessarar síðu?