Sveitarstjórn hefur ákveðið að bæta föstudögum við opnunardaga gámaplansins að Efstubraut 5 og er opnunartími á föstudögum kl. 13.00 – 17.00.
 
Óbreyttur opnunartími á laugardögum er kl. 13:00 - 17:00.
Einnig er opnunartími á mánudögum og miðvikudögum kl. 15.00 - 17:30 óbreyttur.
 
Þessar breytingar taka gildi frá deginum í dag, 21. október 2026.
 
Jafnframt er minnt  á "að sorpgeymslur skulu vera aðgengilegar fyrir sorphirðumenn, standa við hús framanverð og sem næst aðkomu að lóð".
Getum við bætt efni þessarar síðu?