Húnabyggð vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið áætlunarinnar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Mikilvægur þáttur í vinnunni er að kortleggja hættur í umferðinni. Sú kortlagning byggir ekki aðeins á staðsetningu slysa heldur einnig á upplifun íbúa af varasömum stöðum og mögulegum hindrunum í gatna- og stígakerfinu.
Til þess að tryggja að raddir íbúa heyrist hefur sveitarfélagið ákveðið að efna til stafræns íbúasamráðs, þar sem íbúum gefst tækifæri til að koma á framfæri sínum ábendingum. Við leitum eftir upplýsingum frá ykkur um þá hættustaði sem þið upplifið í umferðinni, ásamt því að staðsetja þá á korti.
Athugið, það er hægt að setja fleiri en eina staðsetning en það þarf að smella á „ljúka könnun“ fyrir hverja staðsetningu.
Ábendingagáttin verður opin til 25. október nk. í gegnum eftirfarandi hlekk og/eða QR kóða:

Láttu í þér heyra – þú þekkir þitt nærumhverfi best!
