Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti á fundi sínum 10. febrúar 2026 að deiliskipulag Blöndustöðvar skyldi auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina núverandi starfsemi vatnsaflsstöðvarinnar Blöndustöðvar ásamt fyrirhugaðri uppbyggingu.

Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blöndustöðvar, frá Blöndulóni að Gilsárlóni skammt ofan Blöndustöðvar. Markmið verkefnisins er að fullnýta til orkuöflunar allt að 69 m fall á veituleið Blöndu frá Blöndulóni að inntakslóni Blöndustöðvar.

Skipulagstillöguna má finna hér í skipulagsgátt undir númerinu 1013/2023. Athugasemdafrestur er gefinn frá 12. febrúar til 26. mars 2026.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Húnabyggðar

Getum við bætt efni þessarar síðu?