Húnabyggð mun gefa út rafrænt aðventudagatal þar sem tekin verður saman á einum stað fjölbreytt dagskrá viðburða og uppákoma í sveitarfélaginu á aðventunni og fram yfir áramót.
Markmiðið er að gefa íbúum og gestum góða yfirsýn yfir það sem verður í boði á svæðinu, hvort sem um er að ræða tónleika, jólamarkaði, jólahlaðborð, viðburði á vegum félagasamtaka, skóla, kirkjunnar, fyrirtækja eða annað skemmtilegt sem tengist jólahátíðinni.
Við hvetjum félög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga sem standa fyrir viðburðum til að skrá þá svo hægt verði að setja saman sem heildstæðast aðventudagatal.
Skráning viðburða fer fram hér:
Skrá viðburð í aðventudagatal Húnabyggðar
Vinsamlegast skráið viðburði í síðasta lagi föstudaginn 20. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ingibjörg, Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Húnabyggðar, á netfanginu kristin@hunabyggd.is eða í síma 455-4700.
Njótum aðventunnar saman í Húnabyggð!
