Starfið felst í vinnu í skólaeldhúsi frá 9:00 - 14:00 á starfstíma leik- og grunnskóla og á Skóladagheimili, lengdri viðveru frá 14:00 - 16:00 á starfstíma grunnskóla. Starfið er mjög fjölbreytt þar sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Starfið felst m.a. í því að sjá um uppvask, frágang, matarskömmtun, þrif og þvotta og að aðstoða og gæta barna bæði úti og inni á meðan þau dvelja á Skóladagheimilinu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið felst m.a. í því að sjá um uppvask, frágang, matarskömmtun, þrif og þvotta.
- Aðstoða og gæta barna bæði úti og inni á meðan þau dvelja á Skóladagheimilinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á að vinna með börnum
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Færni í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknum þar sem fram kemur hvaða starf er verið að sækja um skal skilað ásamt kynningarbréfi, ferilskrá og meðmælendum í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@hunaskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 455-4751 og hjá Jóhanni Sigurðssyni matreiðslumeistara í síma 8987462. Umsóknarfrestur er til 14. september.
Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (Kjölur eða Samstaða).