Sveitarstjórn Húnabyggðar samþykkti á fundi sínum 14. apríl 2026 að Aðalskipulag Húnabyggðar 2025 – 2037 skyldi afgreitt skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Aðalskipulagið er stefnumótandi áætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem mörkuð er stefna um m.a. landnotkun, byggðaþróun, samgöngur og umhverfismál til 12 ára. Með tillögunni er lagðar fram fram forsendur fyrir stefnunni og umhverfisskýrsla þar sem lagt er mat á áhrif stefnunnar á valda umhverfisþætti. Auk greinargerðar eru uppdrættir sem sýna landnotkun, veitur og önnur ákvæði er varða landsvæði innan sveitarfélagamarka

Tillagan er aðgengilega í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 1293/2024. Jafnframt er hægt að kynna sér gögn á skrifstofu Húnabyggðar, Húnabraut 5, 540 Blönduósi auk þess sem gögnin eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.hunabyggd.is. Fyrirspurnir um málið má senda á bygg@hunabyggd.is.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir við tillöguna. Ábendingar og athugasemdir þurfa að vera skriflegar og skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 23. október 2026.

Skipulags- og byggingarfulltrúi Húnabyggðar

 

Hlekkur á Skipulagsgátt

Getum við bætt efni þessarar síðu?