Nú um þessar mundir eru bændur og búalið að viðhalda girðingum sínum. Þá er rétt að rifja upp 5.gr. reglugerðar nr. 930/2012, um girðingar meðfram vegum, stendur: „Viðhaldskostnaður girðinga með stofn- og tengivegum greiðist að jöfnu af Vegagerðinni og landeiganda. Þegar landeigandi hefur lokið árlegu viðhaldi girðinga með stofn- og tengivegum skal hann tilkynna það til sveitarstjórnar og viðkomandi þjónustustöðvar Vegagerðarinnar og óska eftir greiðslu á kostnaðarhlutdeild veghaldara. Vegagerðin skal greiða landeiganda sem svarar helmingi af áætluðum viðhaldskostnaði girðinga eins og hann er skilgreindur í 3. mgr. Vegagerðinni er heimilt að synja um greiðslu komi í ljós að viðhaldi hefur ekki verið sinnt með fullnægjandi hætti að mati Vegagerðarinnar.“

Vegagerð ríkisins mun taka út girðingar hjá þeim landeigendum sem tilkynna að girðingar þeirra séu í lagi skv. 5. gr. reglugerðar nr. 930/2012.

Þeir landeigendur sem telja sig uppfylla skilyrði reglugerðarinnar eru beðnir að tilkynna viðhald sitt á girðingum til sveitarfélagsins fyrir 20. ágúst næstkomandi á netfangið: girdingar@hunabyggd.is

Vegagerðin krefst þess að í pósti komi fram:

- Nafn

- Kennitala

- Reikningsnúmer

- Símanúmer

- Tölvupóstsnetfang

Ef þessar upplýsingar koma ekki fram í pósti getur Vegagerðin hafnað kröfu landareiganda vegna skorts á upplýsingum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?