Fjölorkustöð og lágvöruverslun í Húnabyggð

Á stöðufundi Húnabyggðar og Dranga í vikunni var farið yfir stöðu verkefnisins um uppbyggingu á lóð félagsins við Svínvetningabraut.

Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga segir að undirbúngingsvinna verkefnisins hafi verið í fullum gangi undanfarið og hönnunarvinnan sé á góðum stað. Svona verkefni er flókið, það þarf að falla inn í skipulag svæðisins, mæta þarf kröfum Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins um útlit og hönnun lóðarinnar og við það bætist okkar hugmyndir um framtíðarsýn þessarar lóðar. Verkefnið er núna að fara inn í næsta fasa hvað varðar hönnun þar sem skipulagsmál sveitarfélagsins og endanlegt skipulag innan lóðarinnar liggur fyrir. Nú fer vinnan í meiri smáatriði og útfærslur arkitektanna á byggingum og innviðum. Við sjáum fyrir okkur að þessari vinnu ljúki með haustinu og þá fer verkefnið inn í framkvæmdafasa. Við þurfum að ákveða þegar hönnunin liggur fyrir hvernig verkefninu verður áfangaskipt, en líklega getum við ekki reist verkefnið upp í heild sinni á sama tíma. Þessir hlutir munu koma í ljós þegar framkvæmda- og fjárhagsáætlanir verkefnisins verða kláraðar. Verkefnið er stórt á okkar mælikvarða og við erum full tilhlökkunar að sjá það fæðast og vonumst til að geta hafið framkvæmdir sem fyrst.

 

Að sögn Odds Víðissonar arkitekts hefur vinnan undanfarna mánuði snúist um að fullvinna heildarútlit verkefnisins, staðsetningu bygginga og innviða innan lóðarinnar, afstöðu þeirra á milli o.s.frv. Þá hefur skipulagsvinna Húnabyggðar og kröfur Vegagerðinnar um vegtengingar einnig haft áhrif á hönnun verkefnisins. Núna er verið að vinna í innri hönnun, tæknilegum útfærslum og frekari smátriðum sem fylgja byggingunum og þeim innviðum sem verða á lóðinni. Þessi vinna er umfangsmikil enda sé heildar byggingarmagn áætlað um 2.000m2 og vinnan mun taka nokkra mánuði í viðbót að minnsta kosti.

 

Pétur Arason sveitarstjóri Húnabyggðar bætir við að sveitarfélagið sé að sjálfsögðu spennt og nánast óþreyjufullt hvað varðar framvindu verkefnisins, en þetta skríður áfram og við höfum lokið nauðsynlegri skipulagsvinnu og samvinnu við Vegagerðina vegna tenginga lóðarinnar við þjóðveg 1 og Svínvetningabraut. Eins og sést á myndinni sem fylgir fréttinni er verkefnið stórt og það þarfnast mikils undirbúnings og við erum bjartsýn á að fyrr en varir þá verði framkvæmdir komnar í gang og við sjáum byggingar og innviði rísa upp úr jörðinni. Þarna verður hægt að hlaða jákvæða orku í miklu magni ef af líkum lætur.

Getum við bætt efni þessarar síðu?