• Samráðshópur um áfallahjálp í Húnavatnssýslum hefur verið virkjaður vegna smits af kórónuveirunni covid-19 í vesturhluta héraðsins, þ.e. í Húnaþingi vestra. 
  •  Í hópnum sitja fulltrúar RKÍ, þjóðkirkju, félagsþjónustu, heilsugæslu og lögreglu.
  • Samráðshópurinn vill færa fram kærar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks og allra viðbragðsaðila fyrir mikla og óeigingjarna vinnu en ljóst er að mikið og öflugt starf hefur verið unnið á stuttum tíma við sérstakar og oft á tíðum afar erfiðar aðstæður. Einnig vill hópurinn þakka íbúum fyrir stuðning og hjálpsemi við náungann, sem einkennist af samstöðu og samkennd, þolinmæði og þrautseigju, æðruleysi og einingu. 
  • ​Fulltrúar hópsins hafa verið í sambandi við skjólstæðinga og viðbragðsaðila og munu verða það enn frekar á næstunni til þess að bjóða viðrun og sálgæslu.
  • Íbúum á svæðinu er velkomið að hringja í fulltrúa hópsins varðandi ýmis úrlausnarefni eða beiðni um sálrænan stuðning. Þó skal tekið fram vegna þess hve mikið álag er á Heilsugæslu HVE á Hvammstanga þá er æskilegt að beina beiðnum um sálrænan stuðning annað um sinn s.s. RKÍ, kirkju eða félagsþjónustu. Hins vegar ef um bráð andleg veikindi er að ræða skal hringt í eitthvert eftirtalinna símanúmera: 432-1300, 1700, 112. 
  • Hér að neðan eru símanúmer og/eða netföng einstakra stofnanaeða fulltrúa þeirra sem velkomið er að hringja í: 
Getum við bætt efni þessarar síðu?