Vatnsdæla á refli er verkefni sem hófst 16. júlí 2011 en undirbúningur hafði staðið yfir frá
árinu 2008. Annars árs nemendur á hönnungar- og arkitektadeild Listaháskóla Íslands árið
2011 teiknuðu undir stjórn Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur teiknara. Fyrstu sporin tóku frú
Vigdís Ágústsdóttir á Hofi og Ingimundur Sigfússon á Þingeyrum. Nöfnin og bæirnir tengjast
sögunni beint en Hof var höfuðból og bústaður Vigdísar og Ingumundar gamla en sagan er
talin skrifuð í klaustrinu á Þingeyrum árið 1270.


Refillinn segir Vatnsdæla sögu á 46m og fyrir sögufróða á að vera hægt að rekja sig eftir
honum með því að horfa á myndirnar. Meginmálið er í miðju en fyrir ofan og neðan það er
bætt við eftir þörfum áherslum eða efni sem ekki hefur komist að í meginmáli.
Haldið er utan um hversu oft er saumað og hve lengi með því að viðkomandi skrifar nafn sitt
í bók sem fylgir reflinum. Einnig er skrifað niður fæðingarár þess sem saumar, tímafjöldann
sem saumað var og hvað var saumað. Á árunum 2011-2022 hefur var saumað í 7310
klukkustundir g 35 mín og 3266 skipti, þ.e. að hver skrifar í hvert sinn sem saumað er þannig
að margir hafa komið oft en hvert skipti er talið, ekki nöfnin.


Nú er búið að sauma um 35m og reiknast okkur til að saumaskapur klárist á næsta ári, ef allt
gengur eins og hefur gengið undanfarin ár. Nú er verið að sauma í 37. - 39. kafla.
Eftir að saumaskap er lokið þarf að yfirfara bakhliðina, hreinsa refilinn, sauma bakið á hann
og ganga frá.


Allir þeir sem hafa áhuga á Vatnsdælasögu eða að vera þátttakendur í verkefninu eru
velkomnir að hafa samband til að finna tíma.


Jóhanna Erla Pálmadóttir
S. 8984290
jepakur@simnet.is

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?