• Sveitarstjórn samþykkti nýjar, reglur um Ungmennaráð Húnavatnshrepps, sbr. lög nr. 70/2007.
    • Sveitarstjóra var jafnframt falið að leita eftir tilnefningum í Ungmennaráð Húnavatnshrepps skv. 2. gr..
    • Í 2. gr. stendur:
      • Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skipar Ungmennaráð að fengnum tillögum frá eftirtöldum aðilum:
        • Nemendafélag Húnavallaskóla skipar tvo fulltrúa og tvo til vara.
        • Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara.
        • USAH tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara.
        • Sveitarstjórn Húnavatnshrepps tilnefnir einn fulltrúa og einn til vara.
        • Við tilnefningar í ráðið skulu stofnanir/félög leitast við að kynjaskipting sé jöfn.
        • Tilnefning í ráðið skal gilda frá 1. október til eins árs í senn.
        • Meðlimir Ungmennaráðs skulu hafa lögheimili í Húnavatnshreppi og vera á aldrinum 14-20 ára.
        • Ráðið kýs sér sjálft formann, varaformann og ritara.

Hér má finna reglur um Ungmennaráð Húnavatnshrepps:

Hér má finna upplýsingar um ungmennaráð sveitarfélaganna:

Getum við bætt efni þessarar síðu?