• Tilkynning frá skólastjóra:
    • Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í gær hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda. 
    • Skólastjóri ásamt sveitarstjórn Húnavatnshrepps vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir.
    • Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í Húnavallaskóla og leikskólanum Vallabóli, til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til. 
    • Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins og heimasíðum grunn- og leikskóla. 

Skólastjóri

Getum við bætt efni þessarar síðu?