Húnabyggð auglýsir eftir sumarstarfsmönnum 16 ára og eldri.
 
Í ár hefur verið ákveðið að vinna með vinnuhópa ungmenna 16 ára og eldri í samstarfi með Landsvirkjun. Myndaðir verða tveir vinnuhópar sem vinna undir stjórn Landsvirkjunar og vinna að ýmsum verkefnum innan sveitarfélagsins bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl n.k. og umsóknir sendist á hunabyggd@hunabyggd.is merkt “Sumarstarf”. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnabyggðar í síma 455 4700
Getum við bætt efni þessarar síðu?