• Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur ákveðið að kanna hug íbúa sveitarfélagsins til þess hvort hefja skuli sameiningarviðræður við Blönduósbæ. Hafi íbúar áhuga á að sameiningarviðræður fari fram, er stefnt að því að íbúar beggja sveitarfélaga kjósi um sameiningu þeirra í byrjun árs 2022 með það fyrir augum að kosið yrði til nýrrar sveitarstjórnar í maí 2022.
  • Áður en til þess kemur myndi fara fram almenn kynning og umræða eins og lög gera ráð fyrir við sameiningarviðræður. Íbúar geta sent sveitarstjórn spurningar á netfangið konnun@hunavatnshreppur.is og verður þeim spurningum svarað á vefsíðu sveitarfélagsins.
  • Hverjir mega taka þátt?
    • Íslenskir ríkisborgarar sem náð hara 18 ára aldri þann 25. september og eiga lögheimili
      í Húnavatnshreppi þann 30. ágúst.
    • Norrænir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag
      og náð hafa 18 ára aldri.
    • Aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt og
      náð hafa 18 ára aldri.
  • Hvar er hægt að taka þátt?
    • Á kjörstað Alþingiskosninga að Húnavöllum milli kl. 11:00 og 19:00 þann 25. september.
    • Utankjörfundar á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma.
    • Íbúar sem eru á sjúkrastofnun geta óskað eftir að taka þátt með því að senda beiðni
      á netfangið konnun@hunavatnshreppur.is

Skoðanakönnunin fer fram á sambærilegan hátt og kosningar, en er ekki bindandi.

Hér má finna dreifimiða sem sendur var á öll heimili:

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?