• Almannavarnarnefndir Skagafjarðar og Húnavatnssýslna hefur lokið fundi vegna yfirvofandi óveðurs og lítur málið alvarlegum augum, enda er í fyrsta skipti hérlendis gefin út rauð viðvörun vegna veðurs.
  • Lögreglan á Norðurlandi vestra biðlar til fólks að halda kyrru fyrir enda verður ekkert ferðaveður á morgun, búast má við víðtækum vegalokunum í umdæminu strax í fyrramálið.
  • Þá er fólki einnig bent að huga sérstaklega vel að öllum lausamunum utandyra, svo sem ruslatunnum og öðru sem gæti ollið tjóni og eða skaða.
  • Sjávarmál verður í hærra lagi og því eru smábátaeigendur beðnir um að huga að bátum sínum og festa þá vel.
  • Allt skólahald í umdæminu, leik-, grunn- og framhaldsskólar, falla niður á morgun og á miðvikudag og öll íþróttamannvirki verða lokuð.
  • Rafmagn gæti einnig raskast vegna veðurs.
  • Gangi veðurspá að fullu eftir, þarf fólk að verða meðvitað um að það getur reynst miklum erfiðleikum bundið fyrir viðbragðsaðila að komast á vettvang og getur tekið langan tíma. Það þarf samt að sjálfsögðu að tilkynna öll tjón strax.
  • Minnum á neyðarnúmerið: 1-1-2.
  • Hjálpumst að og látum fréttirnar berast.
  • Fylgist vel með fréttum og eins og fyrr segir haldið kyrru fyrir og verið heima!

Hér má sjá frétt RÚV

Getum við bætt efni þessarar síðu?