Laus er til umsóknar íbúð í Hnitbjörgum á Blönduósi.

Hnitbjörg er kjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu.

Um er að ræða tveggja herbergja íbúð. Íbúðin er á 1.hæð, útgengt er í sólskála og út á verönd.

Íbúðin er laus til afhendingar 1.mai 2024 en umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 26. apríl 2024.

Sótt er um á sérstökum eyðublöðum sem aðgengileg eru á vefnum www.felahun.is eða á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Flúðabakka 2, Blönduósi.

Haft verður samband við þá aðila sem eiga inni umsóknir. Úthlutun fer fram samkvæmt reglum Félags- og skólaþjónustu A-Hún.

Hér  er hægt að nálgast umsóknareyðublað.

Getum við bætt efni þessarar síðu?