• Leik- og grunnskólar í Austur Húnavatnssýslu, Húnaþingi vestra og leikskóli Strandabyggðar hafa um nokkurt skeið unnið að læsisstefnu skólanna.
  • Markmiðið með sameiginlegri læsisstefnu var að samræma kennsluhætti og námsmat og efla læsi.
  • Unnin var heildstæð stefna af fulltrúum allra leik- og grunnskóla á svæðinu ásamt fræðslustjóra Austur Húnavatnssýslu.
  • Áhersla var lögð á að allir fengju að hafa áhrif á mótun stefnunnar og hún unnin þvert á skólastig.
  • Út frá þeirri vinnu var gerður bæklingur með helstu áherslum úr stefnunni.

Hér má finna bækling

Getum við bætt efni þessarar síðu?