Kæru íbúar í Húnabyggð

Öllum íbúum i Húnabyggð (18 ára og eldri) er boðið að taka þátt í könnuninni „Staðarandi í Húnabyggð“ sem er liður í rannsóknarverkefninu „Byggðabragur“ á vegum Rannsóknaseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst. Verkefninu er ætlað að kanna hvernig sé hægt að auka jákvæðan byggðabrag með aðferðafræði sálfræðinnar. Könnuninni er ætlað að greina staðarandann í Húnabyggð og kortleggja sjálfsmynd íbúa á svæðinu. Með því er hægt að vinna með styrkleika svæðisins og meta veikleika þess. Það er mikilvægt að sem flestir íbúar svari könnuninni þar sem niðurstöðurnar gætu verið þýðingarmiklar fyrir framtíð byggðaþróunar á svæðinu og landinu öllu, því vonast er til þess að verkefnið gefi fordæmi sem nýst geti fleiri íslenskum byggðarlögum. Markmiðið er að upp úr þessari vinnu verði unnin handbók eða aðgerðaáætlun sem íslensk sveitarfélög geti nýtt sér til að efla staðaranda sinn.

Þátttakendum er boðið að skrá sig í happdrætti og mun einn heppinn þátttakandi vinna 50.000 kr. gjafabréf.

Könnunina er hægt að taka í tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma. Slóðin á könnunina er hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?