Íþróttamiðstöðin á Blönduósi óskar eftir að ráða karlmann í 100% starfshlutfall.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér:

  • Umsjón og eftirlit með búnings- og baðklefum, íþrótta- og sundlaugarmannvirkjum og öðru því sem mannvirkinu tilheyrir.
  • Vinna við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur.
  • Aðstoða íþróttakennara og þjálfara eftir þörfum og sjá til þess að þeir geti nálgast áhöld og búnað sem þarf á hverjum tíma. - Eftirlit tækja og áhalda þannig að búnaður sé í lagi.
  • Starfsmaður þarf að hafa áhuga og skilning á íþróttum og æskulýðsstarfi, vera þjónustulipur með góða framkomu, og hafa gaman af að starfa með börnum, unglingum og öðrum þeim sem mannvirkið stunda.
  • Starfa að öðru leyti samkvæmt almennum verklagsreglum, verklýsingum og fyrirmælum frá forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar.
  • Annað það sem starfsmanni kann að vera falið og tengist starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar.

 

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
  • Tölvukunnátta

 

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og geta staðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sér til þess að allir fái þetta námskeið og geti tekið hæfnispróf.

Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2023.

 

Umsóknir sendist á netfangið: hunabyggd@hunabyggd.is.

Allar upplýsingar á skrifstofu Húnabyggðar í síma: 455-4700 og á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is. 

 

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?