• Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra í Austur Húnavatnssýslu, Húnavatnshrepps, Blönduósbæjar, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar, boðar til íbúafundar laugardaginn 6. mars kl. 10:00-13:00.
  • Á fundunum verður kynning á verkefninu, auk þess sem farið verður yfir afraksturinn af vinnu starfshópa sem fjallað hafa um stöðu málaflokka í starfsemi sveitarfélaganna. Í kjölfar kynningarinnar gefst íbúum færi á að ræða niðurstöðurnar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri varðandi þær og sameiningu sveitarfélaganna almennt.
  • Fundirnir verða rafrænir og haldnir í gegn um Zoom-fjarfundakerfið. Á hunvetningur.is má finna leiðbeiningar um rafræna fundi og þar birtist slóð inn á fundina.
    • Á hunvetningur.is má finna ýmsar upplýsingar um verkefnið og senda spurningar. 
Getum við bætt efni þessarar síðu?