Húnaskóli auglýsir eftir starfsfólki fyrir skólaárið 2023 - 2024

 

Húnaskóli er nýr framsækinn skóli í mótun með 180 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.

 

Kennarastöður

Staða umsjónarkennara á unglingastigi, 100% staða til eins árs frá 1. ágúst 2023 til 31. júlí 2024 vegna afleysingar. Kennslugreinar: íslenska, samfélagsfræði og stærðfræði.

 

Staða sérkennara, 100% staða frá 1. ágúst 2023. Æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun á sviði sérkennslu og kennslureynslu á því sviði. Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að vinna með fjölbreyttum nemendahópi og kostur ef reynsla af kennslu á mið- og unglingastigi sé til staðar.

 

Staða íþróttakennara, 100% staða frá 1. ágúst 2023. Um er að ræða kennslu bæði í íþróttum og sundi í 1. - 10. bekk.

 

Staða kennara í hönnun og smíði, 65% staða (með hugsanlegum möguleika á 100% stöðu með kennslu í öðrum námsgreinum) frá 1. ágúst 2023.

 

Umsækjendur verða að hafa leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla æskileg. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu, samþættingu námsgreina og þemabundin verkefni. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg.

 

Stuðningsfulltrúi og starfsfólk á Skóladagheimili

Staða stuðningsfulltrúa í 50% starf frá 18. ágúst 2023 til 3. júní 2024. Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa við fjölbreyttar aðstæður bæði inni og úti. Starfið er mjög fjölbreytt þar sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Stuðningsfulltrúi er m.a. kennara til aðstoðar við að sinna einum eða fleiri nemendum. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda; félagslega, tilfinningalega, námslega og í daglegum athöfnum.

 

Staða skólaliða á Skóladagheimili í 50% starf frá 18. ágúst 2023 til 3. júní 2024. Um er að ræða 50% starf á Skóladagheimili sem starfrækt er frá hádegi til klukkan fjögur. Starfið er mjög fjölbreytt þar sem áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við börn og fullorðna. Starfið felst m.a. í því að aðstoða nemendur í mötuneyti og gæta þeirra bæði úti og inni á meðan þeir dvelja á Skóladagheimilinu.

Umsóknum þar sem fram kemur hvaða starf er verið að sækja um skal skilað ásamt kynningarbréfi og ferilskrá í tölvupósti á netfang Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra, thorhalla@hunaskoli.is. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra í síma 892-4928. Umsóknarfrestur er til 17. júlí 2023.

 

Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Umsækjendur mega ekki hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga (KÍ, Kjölur og Samstaða)

 

 

 

 

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?