Dagskránna er hægt að nálgast hér.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin víðsvegar um álfuna í september ár hvert. Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Hér í Húnabyggð verður boðið upp á frábæra dagskrá  í sveitarfélaginu og eru allir hvattir til að hreyfa sig, ganga eða hjóla í vinnu, fara í göngu- og hjólatúra en einnig að taka þátt í þeim viðburðum sem boðið verður upp á. 

Getum við bætt efni þessarar síðu?