• Vegna gulrar viðvörunar Veðurstofunnar hefur verið tekin ákvörðun um að fella niður allt skólahald í leik- og grunnskóla Húnavatnshrepps á morgun miðvikudaginn 15. janúar 2020
  • Viðvörun þessi er í gildi fram til klukkan 15:00 á morgun og því útlit fyrir  slæmt veður í öllu sveitarfélaginu.
  • Mikilvægt er að brýna fyrir íbúum að Vegagerðin mun ekki taka ákvörðun um snjómokstur á Þjóðvegi 1 fyrr en að morgni 15. janúar og svo í framhaldinu, mýkstur á öðrum leiðum.
  • Búast má við að þung færð verði á vegum sveitarfélagsins  á morgun.
  • Svo er rétt að minna á að kurteysi og tillitsemi, kostar ekkert.
Getum við bætt efni þessarar síðu?