• Eins og fram kom á blaðamannafundi heilbrigðisráðherra fyrr í dag, verður sett á fjögurra vikna samkomubann á landinu frá 15. mars n.k., aðfararnótt mánudags.
  • Nánari útfærsla kemur fram í auglýsingum síðar í dag.
  • Vettvangshópur Húnavatnshrepps, fundar nú um stöðuna og í framhaldinu munu stjórnendur í sveitarfélaginu taka stöðuna.
  • Nánari upplýsingar verða settar inn á heimasíðuna.

Ég biðla til íbúa Húnavatnshrepps að sýna almenna skynsemi í öllum samgangi fólks. Við þurfum að snúa bökum saman og standa okkar plikt því aðgerðirnar eru settar til að draga úr faraldrinum, svo að álag á heilbrigðiskerfið verði ekki of mikið.

Ég vil taka það fram að enn hefur ekki verið staðfest smit á norðurlandi.

Kæru íbúar, gerum okkar besta í stöðunni og verum skynsöm.
Frekari fréttir og ákvarðanir verða birtar á heimasíðunni.

Einar Kristján

Getum við bætt efni þessarar síðu?