• Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2021:
    • Atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir
    • Verkefnastyrkir á menningarsviði
    • Stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði
  • Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 16. nóvember næstkomandi

 

  • Á heimasíðu SSNV http://www.ssnv.is/is/uppbyggingarsjodur er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar við gerð umsókna.
  • Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda vel til verka. 
    • Starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar. Nú er bara að hefjast handa.             
  • Á árunum 2015-2020 bárust Uppbyggingarsjóði alls 688 umsóknir þar sem óskað var eftir 1100 millj. kr.
    • Sjóðurinn veitti alls 475 styrki, samtals að upphæð 388 millj. kr. Hver einstakur styrkur var allt frá 150 þús. kr. og upp í rúmar 6 milljónir.
  • Sé styrkjunum skipt í efnisflokka:
    • Þá voru veittir 111 styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, samtals að upphæð 181 millj. kr.
    • Verkefnastyrkir á menningarsviði voru 302, samtals að upphæð 123 millj. kr.
    • Stofn- og rekstrarstyrkir til safna og setra voru 62, samtals að upphæð 84 millj. kr.

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?