• Ert þú  á aldrinum 18-30 ára?
  • Hefur þú áhuga á að verða ungmennafulltrúi Íslands á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins?:
    • Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins kemur saman í Strasbourg tvisvar á ári, að vori og hausti. Undanfarin ár hafa verið valdir ungmennafulltrúar frá öllum aðildarlöndum Evrópuráðsins til að taka þátt í þingunum og vinna saman að grassrótarverkefnum. Nú er verið að auglýsa eftir ungmennafulltrúum fyrir árið 2022, sjá nánar.
  • Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 24. janúar nk.
    • Þátttaka býður upp á skemmtilegt samstarf með ungmennafulltrúum frá löndum Evrópu, allt frá Íslandi til Azerbajan og gefur innsýn í stöðu evrópskra sveitarfélaga og svæða, sérstaklega á sviði mannréttinda og lýðræðis.
  • Nánari upplýsingar gefur Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasvis Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Getum við bætt efni þessarar síðu?