• Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024 hafa nú verið lögð inn á samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.
  • Íbúar Norðurlands vestra eru hvattir til að kynna sér áætlunina og koma með ábendingar um hvað betur má fara.
  • Áætlunin var unnin frá því í byrjun maí þar til í október. Mikil áhersla var lögð á samráð með rafrænni könnun, fundum í hverri sýslu starfssvæðisins sem og Stórfundi. Samtals komu því á fimmta hundrað íbúa landshlutans að gerð áætlunarinnar.
  • Áætlunin er unnin í samræmi við samning landshlutasamtakanna fyrir hönd sveitarfélaganna á starfssvæðinu vip ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála og menntamála.
  • Er henni ætlað að vera leiðarljós áranna 2020 – 2024 hvað þróun og áherslur innan landshlutans varðar.
  • Samráðsferlið stendur til 14. október á Samráðsgátt stjórnvalda
Getum við bætt efni þessarar síðu?