Samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar við Fjallabraut, Lækjarbraut og Holtabraut.

Hér er hægt að nálgast deiliskipulags breytingu.

Hér er hægt að nálgast aðalskipulags breytingu.

Breytingin fjallar um stækkun á núverandi leikskólalóð og niðurfellingu á tveimur einbýlishúsalóðum Hólabraut 19 og 21 sem munu falla undir stækkun leikskólalóðar eftir breytingu.

Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Húnabyggðar að Hnjúkabyggð 33 frá og með 27. september til 8. nóvember 2023. Þær verða einnig til sýnis á heimasíðu Húnabyggðar, www.hunabyggd.is sem og birtar á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við til 8. nóvember 2023 á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is, eða bygg@hunabyggd.is.

 

 

Börkur Þór Ottósson

Skipulagsfulltrúi Húnabyggðar

Getum við bætt efni þessarar síðu?