Blönduskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í unglingadeild. Um er að ræða tímabundið starf til 1. júní 2019 og starfshlutfall er u.þ.b. 50%.

Starfið felur í sér að aðstoða unglinga við nám og fjölbreytt verkefni sem til falla í skólastarfi.

Vinnutími er frá kl 8-12:30.

Upplýsingar gefur Þuríður Þorláksdóttir skólastjóri Blönduskóla í síma 452-4147 eða thuridur@blonduskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til þess að sækja um.

Getum við bætt efni þessarar síðu?