Húnabyggð
Skemmtilegt verkefni með Textílsetrinu
Húnavallaskóli tekur þátt í verkefni á vegum Textílsetursins sem hefur það að markmiði að auka þekkingu og innsýn nemenda í söguna, samfélagið, fullveldishugtakið og velta því fyrir sér hversu mikilvægt fullveldið og prjónaskapur er fyrir okkur Íslendinga. Um leið er aukin þekking á prjóni og mikilvægi þessa þjóðarfs í sögu landsins.
Nemendur vinna verk sem hefur tilvísun í fullveldisafmælið þar sem prjón er nýtt sem verkfæri. Verkið verður sýnt á Prjónagleði 2018 og síðan mun það prýða súlu í Leifstöð.
Í gær heimsótti Jóhanna Pálmadóttir forstöðumaður Textílsetursins nemendur í 4.-8. bekk og hóf verkefnið formlega.
Í verkið notum við ull í fánalitunum og prjónaðir eru bútar sem verða settir saman í teppi. Allir í skólanum geta tekið þátt.
Heimsókn í Heimilisiðnaðarsafnið
Síðastliðinn þriðjudag fóru nemendur fjórða og fimmta bekkjar í hina árlegu heimsókn í Heimilisiðnaðarsafnið. Eins og venja er fengu nemendur leiðsögn og fræðslu um safnið, einnig fengu þau að spreyta sig á að vefa, kemba og spinna ull.
Framsagnarkeppn 2018
Framsagnarkeppni
grunnskólanna í Húnavatnsþingi var haldin í gær miðvikudaginn 7. mars. Höfðaskóli
sá um lokahátíðina að þessu sinni.
Þrír keppendur komu frá hverjum skóla, þ.e. Blönduskóla,
Húnavallskóla, Höfðaskóla og Grunnskóla Húnaþings vestra. Forkeppni er haldin í
hverjum skóla fyrir sig og mæta því þrír bestu úr hverjum skóla í lokakeppnina.
Óhætt er að segja að allir keppendur hafi staðið sig vel og settu dómnefndina í
talsverðan vanda því erfitt var að velja úr.
Dómarar voru
að þessu sinni Sigrún Grímsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Hrönn
Bergþórsdóttir (fulltrúi Radda).
Úrslit urðu
þessi:
1.      Klara Ósk Hjartardóttir,
Höfðaskóla
2.      Valdas Kaubrys, Húnavallaskóla
3.      Máney Dýrunn Þorsteinsdóttir, Grunnskóla
Húnaþings vestra
Raddir,
samtök um vandaðan upplestur og framsögn veittu peningaverðlaun fyrir fyrstu 3
sætin.
Allir
keppendurnir fengu síðan tvenn bókaverðlaun.
Að lokum var
farandskjöldur afhentur en skjöldurinn var gefinn af sjóði sem stofnaður var
til heiðurs Grími Gíslasyni. Sá skóli sem hlýtur 1. sætið varðveitir skjöldinn
Forkeppni fyrir Skólahreysti
Skólahald fellur niður í Húnavallaskóla ( leik- og grunnskóla )
Skólahald fellur niður í Húnavallaskóla ( leik- og grunnskóla ) á morgun  miðvikudag (21. febrúar) vegna slæms veðurútlits.
Skólahald fellur
Allt skólahald fellur niður í dag 2. febrúar bæði
í leik- og grunnskóla vegna veðurs.